<$BlogRSDURL$>
Fréttir frá Rotterdam
fimmtudagur, júlí 07, 2005
 
Hérna er mynd af Kolbirni með bekknum sínum. Myndin var tekin eftir vel heppnað dansmaraþon sem fór fram á skólalóðinni.



|
sunnudagur, júní 05, 2005
 
Nú er monsún tímabilið hafið í Hollandi, það bara ætlar ekki að hætta að rigna. Heima er alltaf sagt að rigningin sé góð fyrir gróðurinn. Að mínu viti er allur gróður hér illgresi, amk er vöxturinn slíkur að ekki verður við neitt ráðið nema með stórvirkum vinnuvélum. Það var komin mikil órækt í garðinn áður en við héldum júróvisjón partýið, ég brá því á það ráð að fá ryðguðu garðverkfærin lánuð hjá nágrannanum. Sláttuvélin hans var hvergi nærri nógu stórvirk til að ráða við hæðina á grasinu og þurfti ég því að skríða um garðinn með ryðgaðar limgerðisklippur. Nú tveimur vikum seinna er sama ástand uppi á teningnum.


Það er von á góðum gestum hér á Þriðjudaginn en þá koma Þormar, Tine og dóttirin Kara í heimsókn til okkar. Við fullorðna fólkið ætlum svo að bruna til Brussel á föstudaginn að sjá uppáhalds skallapopparana okkar U2. Okkur er farið að hlakka mikið til að fá þau.
|
miðvikudagur, maí 11, 2005
 

Auðvitað var Litla hafmeyjan heimsótt í Kaupinhafn Posted by Hello
|
 

Kolbrún og Sesselja á góðri stund Posted by Hello
|
 

Nyhavn Posted by Hello
|
 

Mikið borðað af ís Posted by Hello
|
 

Í kuldanum í Tívolí með Sif Posted by Hello
|
 

Einhver fræg kirkja úr marmara heimsótt Posted by Hello
|
 

Farið var í dýragarðinn og horft á ljónin geispa Posted by Hello
|
 

Þau fóru öll saman á Ástralskan veitingastað og fengu sér krókódíla og kengúrur Posted by Hello
|
 

Sif átti þessa bústnu Kanínu sem Kolbjörn tók ástfóstri Posted by Hello
|
sunnudagur, maí 08, 2005
 
Ég hélt grillveislu fyrir bekkjarfélaga úr RSM sem búsettir eru Rotterdam og Haag. Sautján manns mættu við skemmtum okkur vel við mat og drykk. Grillaðar voru Nautasteikur, Hamborgarar, Spare ribs, kjúklingar og pulsur. Suður Ameríkanar eru miklir sérfræðingar í grilluðum mat og komu þeir með góða maríneraða kjúklingarétti og nautakjöt. Gestunum þótti mikið til "íslenska" gasgrillsins koma, en fáir höfðu upplifað grillun á gasi áður, og virðist kolgrillið vera normið annars staðar en á Íslandi og í Ameríku.



Í dag ætlaði ég að fara til Amsterdam á heimaleik Ajax gegn RKC Waalvijk, með Tryggva og Mattijs. Tryggvi hringdi í mig á föstudagskvöldið, í talsverðu uppnámi þar sem hann hafði komist að leikurinn ætti að vera á laugardagskvöldið, en ekki á sunnudeginum. Svo virðist sem leikurinn hafi verið færður til milli daga! Því á miðunum stendur sunnudagur 8. maí! Þetta mal verður að teljast allt hið sérkennilegasta.
|
fimmtudagur, apríl 21, 2005
 

Feðgarnir saman í fullum herðklæðum Posted by Hello
|
 

Það var góð stemning þegar leikurinn var að byrja. Feyenoord komst yfir á þriðju mínútu og jók það heldur betur á stemninguna. Því var það skítt að PSV skyldi jafna á 89. mínútu og vinna í vítaspyrnukeppni Posted by Hello
|
miðvikudagur, apríl 20, 2005
 
Nú er fjör! Í kvöld ætlum við Kolbjörn á fjórðungsúrslit Amstelbikarkeppninni í fótbolta milli Feyenoord frá Rotterdam og PSV Eindhoven. Leikurinn verður háður á heimavelli Feyenoord, De Kuip, og er laungu búið að selja alla 50 þúsund miðana. Það voru reyndar einhver ólæti eftir heimaleik Feyenoord gegn Ajax frá Amsterdam, en ólíklegt er að eitthvað slíkt hendi í kvöld enda PSV ekki sömu fjendur Feyenoord kappanna og Ajax. Í öllu falli erum við í fjölskyldustúkunni sem er algjörlega laus við hyski.
|
 

Kolbjörn náði þeim merka árangri að taka Zvemdiploma B. Nú á hann bara eftir að taka Zvemdiploma C og þá telst hann fullsyndur samkvæmt hollenskum stöðlum sem eru býsna strangir. Posted by Hello
|
 

Kolbjörn reyndi líka fyrir sér í boltanum. Hafði meiri áhuga á að skoða smádýralífið. Posted by Hello
|
 

Fór á ströndina um daginn að æfa gamla takta. Er bara ansi lúnkinn að halda bolta á lofti. Gat 60 sinnum um daginn sem er nóta bene meira en Bjöggi gat. Bjöggi þessi átti heima á móti mér í barnæsku, hann gat haldið bolta 53svar á lofti þegar hann var tíu ára, hef hingað til bara heyrt lygasögur um að einhver hafi getað meira en hann. Posted by Hello
|
fimmtudagur, apríl 07, 2005
 

Við fórum út að borða um daginn í Euromast í Rotterdam. Þaðan er frábært útsýni yfir borgina, sérstaklega þegar það er eins gott veður eins og þegar við fórum. Kolbjörn uppgötvaði nýjan hæfileika, sem er að festa skeiðar á andlitiið á sér. Hann fattaði uppá þessu eftir að hafa skoðað heimsmetabókina en þar var að finna strák sem gat haldið þrettán Posted by Hello
|
miðvikudagur, mars 09, 2005
 

Jæja þá er Snjókallinn dauður. Það eina sem var eftir af honum í morgun var þessi drullublettur með smá snjó í miðjunni. Nú á að fara smám saman að hitna Posted by Hello
|
sunnudagur, mars 06, 2005
 
Matargerðarlist

Í eldri pistli vísaði Kolbrún í að mér hefði farið mikið fram í mahtergerðarlist. Um daginn brá svo við að ég fór að versla í hollensku "bónus" búðinni LIDL. Þessi verslun er öðruvísi en aðrar verslanir að því leyti að þar er lítið úrval af ferskmeti, og til að mynda eru allar kjöt og fiskvörur seldar frystar. Ég keypti það sem ég hélt að væri forláta frosinn kjúklingur, sem ég ætlaði að grilla í ofninum í kvöldmat. Þegar ég tók utanaf hræinu þá kom í ljós að þetta var alls ekki kjúklingur heldur HANI. Nú voru góð ráð dýr, og ég hafði ekki hugmynd hvað ég ætti að gera. Þá mundi ég í skyndingu eftir því að foreldrar mínir höfðu á árum áður stundum keypt eitthvað sem hét "unghæna" og að mig minnir soðið hana í c.a. 4 tíma og svo matreitt úr þessu pottrétt.

Ég ákvað að því væri ráð að matreiða pottrétt úr hananum og að það skyldi vera karrí kjúklingspottréttur. Ég fór á internetið og fann uppskrift í skyndingu og hóf eldamennsku. Byrjað var að brytja niður hanann og steikja. Gulrætur, laukur og sellerí allt steikt á pönnu. Svo var það að gera karrísósuna, þá þurfti að sjóða saman mjólk og vatn með kjúklingakrafti og blanda saman við grænmetið og hanann. Út í þetta var svo stráð einni matskeið af hveiti til að þykkja sósuna. Síðan átti að bæta einni teskeið af karrí útí. Ég ákvað að setja tvær. Síðan var grauturinn soðinn í nokkrar mínútur. Þegar ég bragðaði á góðgætinu, þá kom tilfinning eins og ég get ímyndað mér að eldgleipir fær ef honum svelgist á á ögurstundu. Ég hafði fyrir mistök sett tvær kúfullar teskeiðar af chili pipar í stað karrís. Nú voru góð ráð dýr. Var nú brugðið til þess ráðs að þynna sósuna með því að bæta c.a. tveimur lítrum af kranavatni útí. Bragðið minnkaði ekki mikið við þetta, en pottrétturinn varð ekki mjög girnilegur á að líta svona lapþunn vella með nokkrum hanabitum fljótandi á yfirborðinu. Til að bregðast við þynningunni var settur slatti af hveiti í viðbót svona til þykkingar og svo átti bara að láta allt saman sjóða niður. Hveitiviðbótin þykkti ekki sósuna heldur myndaði kekki, þar sem hver kökkur var um einn sentímetri í þvermál, og því erfitt að sjá muninn á kekkjunum og hanabitunum. Þetta endaði með því að Kolbjörn og Gwenný fengu hamborgara, en ég og Kolbrún létum okkur nægja að að veiða nokkra eldsterka hanabita uppúr grautnum. Ég held að ég láti pottréttina vera í bili, kannske best haldi mig bara við stórsteikur og þessháttar matargerð.
|
föstudagur, mars 04, 2005
 
Í morgun kom frostið sem spáð var í gær, ekki 15 stig eins og einhversstaðar var spáð heldur nær 8 stigum. En það var andsk. nógu kalt fyrir því. Snjórinn sem féll af himnum fyrir á miðvikudaginn virðist ætla að festast. Rotterdam er allt í einu búið að breytast í svona "winter wonderland".
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com