<$BlogRSDURL$>
Fréttir frá Rotterdam
mánudagur, apríl 26, 2004
 

Jæja þá er maður byrjaður í prófum enn eina ferðina. Þetta er samt í síðasta skipti sem ég fer í próf í bili, því á fimmtudag verð ég kominn í sumarfrí sem nær til loka ágúst. Þeir hjá Eimskip hér í Rotterdam aumkunuðu sér yfir mig og ætla að leyfa mér að vera á daginn á skrifstofunni þeirra í sumar. Margir skólafélagar mínir hafa ekki verið jafn lánsamir og ég, og þurfa líklega að mæla göturnar hér í Rotterdam í sumar.


|
mánudagur, apríl 12, 2004
 

Frábærir Páskar


Þrátt fyrir skítakulda

Það var svaka stuð hjá okkur um páskana. Á föstudaginn langa fórum við í skemmtigarð sem heitir Efteling og er í 45 mínútna fjarlægð frá Rotterdam. Ég, Kolbjörn og Helena drifum okkur í aðal rússíbanan sem fór tvöfalda lykkju og þrefalda skrúfu. Kolbrún ákvað að bíða með rússíbanan þangað til í næstu ferð. Á laugardaginn fórum við heimsókn til Eiríks og Auðar vina okkar sem búa í Amsterdam og grilluðum saman svínakjöt. Ég veit ekki hvert Pakistaninn í íbúðinni við hliðiná ætlaði þegar hann sá okkur grilla í þessum kulda. Eiki og Auður eignuðust stelpu fyrir þremur vikum, en fyrir eiga þau tæplega tveggja ára stelpu, það má búast við fjöri á þeim bænum næstu árin.

Á páskadag sváfum við til hádegis og fórum svo bíltúr um 200 km leið til Oostende í Belgíu. Fyrst ætluðum við til Brugge, en villtumst við Antwerpen sökum ömurlegra umferðamerkinga. Belgar virðast almennt ekki hafa áttað sig á gagnsemi umferðarmerkja og hafa fá slík í notkun. Oostende er strandarbær Belga, með mörgum veitingastöðum og miklu mannlífi. Það var frekar kalt þegar við vorum en samt var slatti af fólki á ströndinni. Það verður örugglega gaman að skreppa aftur þangað í sumar.

Í dag hlýnaði svo loksins aftur og brast á með 20° hita (amk á svölunum hjá okkur) og fóru Kolbrún og Kolbjörn í Kralingen garðinn sem er garður með stóru vatni hér í Rotterdam. Á meðan fór ég og hitti skólafélagana til að undirbúa fyrirlestur sem við eigum að halda á föstudaginn.





Í Efteling á föstudaginn, allir í stuði og Kolbjörn fékk að sjálfsögðu kandífloss






Kolbrún og Kolbjörn með Lilju Eiríksdóttur þriggja vikna á milli sín. Eiríkur tveggja barna faðir stendur í ströngu.





Fjölskyldan saman á ströndinni í Oostende. Kolbjörn var sá eini sem hætti sér með stórutánná í sjóinn


|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com