<$BlogRSDURL$>
Fréttir frá Rotterdam
sunnudagur, júní 05, 2005
 
Nú er monsún tímabilið hafið í Hollandi, það bara ætlar ekki að hætta að rigna. Heima er alltaf sagt að rigningin sé góð fyrir gróðurinn. Að mínu viti er allur gróður hér illgresi, amk er vöxturinn slíkur að ekki verður við neitt ráðið nema með stórvirkum vinnuvélum. Það var komin mikil órækt í garðinn áður en við héldum júróvisjón partýið, ég brá því á það ráð að fá ryðguðu garðverkfærin lánuð hjá nágrannanum. Sláttuvélin hans var hvergi nærri nógu stórvirk til að ráða við hæðina á grasinu og þurfti ég því að skríða um garðinn með ryðgaðar limgerðisklippur. Nú tveimur vikum seinna er sama ástand uppi á teningnum.


Það er von á góðum gestum hér á Þriðjudaginn en þá koma Þormar, Tine og dóttirin Kara í heimsókn til okkar. Við fullorðna fólkið ætlum svo að bruna til Brussel á föstudaginn að sjá uppáhalds skallapopparana okkar U2. Okkur er farið að hlakka mikið til að fá þau.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com