Fréttir frá Rotterdam
mánudagur, ágúst 23, 2004
Á föstudaginn fórum við hjónin í fyrsta sinn út á "djammið" hér í Rotterdam í langa hríð. Fórum síðast í maí þegar Kolbjörn og Helena voru í fríi á Íslandi. Tilefnið að þessu sinni var að Vigdís vinkona okkar er að flytja um mánaðarmótin aftur til Íslands og hélt smá kveðjupartí að því tilefni. Hún sýndi okkur líka nýja hollenska kærastann sinn hann Ruul.
Við vorum ekki komin heim fyrr en klukkan fjögur, og því var maður hálf ónýtur daginn eftir. Kolbrún eyddi helginni í að undirbúa fyrirlestur sem hún á að vera með í dag, og var ég settur í að gera 108 tölfræðipróf á mæliniðurstöðum frá henni, og var ég því líka að undirbúa fyrirlesturinn í gær.
Við erum að öllum líkindum að flytja uppúr næstu mánaðarmótum. Við getum fengið lítið raðhús í hverfi sem heitir Prinsenland sem er í austurhluta Rotterdam. Húsið lítur ágætlega út að utan og er í frábæru hverfi með tjörn rétt hjá, búð sem er opin til 9 og 8 á laugardögum (hef hvergi séð það annarsstaðar í Hollandi), fullt af krökkum, og skóla rétt hjá. Eina vandamálið er að það er meiri vinna að flytja inn í leiguhúsnæði í Hollandi en að kaupa íbúð á íslandi. Það þarf að setja gólfefni á alla íbúiðina, taka af veggfóður og mála, pússa upp stiga og kaupa eldavél. Ærin fyrirhöfn það.
laugardagur, ágúst 14, 2004
|
þriðjudagur, ágúst 10, 2004
Það kom að því í gær að hjóli væri stolið af okkur. Gwenny Au-Pair og Kolbjörn skelltu sér í rennibrautagarðinn Tropicana sem er staðsettur ekki langt frá þar sem við eigum heima. Þegar þau komu út eftir að hafa tekið nokkrar salíbunur var búið að opna lásinn og taka hjólið hennar Kolbrúnar. Mikill svekkur það.
Gwenny greyjið var alveg í rusli yfir þessu. Kolbjörn var ívið rólegri, spurði Gwenny hvort hún héldi ekki að mamma hans yrði reið, "... kannski SPRINGUR hún bara" sagði hann.
Að sjálfsögðu var þetta algjör svekkur, en eitthvað sem maður getur alltaf átt von á hér í Hollandi.
laugardagur, ágúst 07, 2004
Bændur hafa í auknum mæli fært sig yfir á ný verksvið eftir að kindum, geitum og öðrum kvikfénaði fór að fækka vegna sauðfjársjúkdóma, sauðfjársamninga og annarra kynsjúkdóma. Hér má sjá einn galvaskan bónda á nýjum starfsvettvangi
mánudagur, ágúst 02, 2004
Óveður í Rotterdam
Það er búið að vera um þrjátíu stiga hiti hér síðustu daga, og gerir maður fátt í slíkum hita nema svitna. Það var rosalega þægilegt að komast á skrifstofuna í morgun og setja loftkælinguna af stað. Samt betra að fara varlega í þessar loftkælingar, ég steinlá eftir aðra vikuna hjá Eimskip fékk hálsbólgu, kvef og flensu eftir misnotkun á loftkælingunni.
Við fórum á karnival hér í Rotterdam á laugardaginn, svaka stuð frameftir degi, Kolbjörn baðaði sig í gosbrunni og líkaði það vel. Um kvöldið óð maður uppað hnjám í rusli. Hreinsunardeild Rotterdamborgar stóðu sig samt með prýði og allt orðið spikk og span morguninn eftir.


