Fréttir frá Rotterdam
laugardagur, október 30, 2004

Það er búið að vera rosalega gott veður í Hollandi síðustu vikur. Hitinn í dag var um 16 gráður. Við fórum í göngutúr í morgun að njóta góða veðursins, þá var þessi mynd tekin af mæðgininum. Kolbjörn gat ekki verið kyrr með hendina. Takið eftir öndunum sem synda í græna slýinu í síkinu til vinstri. Nú eru öll síki svona græn, og eru endur og annar fiðurfénaður að næra sig í þessu.


Ein af hliðarverkunum góðviðrisins er að það er allt ennþá morandi í skorkvikindum. Þessi kónguló býr fyrir framan stofugluggann hjá okkur og veiðir meðal annars moskítoflugr sem enn er allt morandi af

föstudagur, október 29, 2004
Í dag er síðasti dagurinn hjá Kolbirni í Talmaschool. Á mánudaginn byrjar hann í nýjum skóla, de Stelberg, sem er í næstu götu hér í nýja hverfinu. Við feðgarnir bökuðum múffur í gærkvöldi til að fara með síðasta daginn í skólann, en það vildi ekki betur til en svo að allar múffurnar festust við formið. Það hefur líklega ekki verið nógu vel smurt. Því verða engar kökur handa krökkunum í Talmaschool, bara frostpinnar. Ég held reyndar að þeim sé alveg sama. Við Kolbjörn þurftum því að borða allar múffurnar í gærkvöldi með skeið uppúr forminu. Kolbrún og Gwenný fengu svo sína múffuna hvor þegar þær komu heim úr hollensku námskeiðinu.
fimmtudagur, október 28, 2004
Ég er búinn að vera að koma mér af stað í skokkprógramm síðustu daga. Í gær ákvað ég að prófa að hlaupa í kringum Kralingen vatn. Hef heyrt frá félögum í skólanum að það sé góð skokkleið og "ekki svo löng". Málið er það að ég þarf að skokka í c.a 12 mínútur að og frá vatninu áður en ég er byrjaður að fara í kringum það. Heildartími í gær voru því 55 mínútur, sem er kannske í það mesta þegar maður er ekki kominn í almennilegt form. Ég fékk hálfgerða minnimáttarkennd þegar ég frétti að leiðinlegi og montni norðmaðurinn Felix Evensen hleypur þetta á rétt rúmlega hálftíma (mér fannst ekkert um þennan Felix fyrr en ég frétti þetta). Þessir Norðmenn! Þessi fer líklega ekki af gönguskíðunum allan veturinn heima í Tromsö.
þriðjudagur, október 26, 2004

Varúð! Menn við vinnu
Það hefur mikið gengið á undanfarna daga. Húsbóndinn hefur varla látið frá sér nýju BOSCH höggborvélina sem hann fjárfesti í á laugardaginn, en undanfarna daga hafa verið sett upp ljós og rúllugardínur. Á myndinni sést heimilsfaðirinn vera í þann mund að bora fyrir spegli á baðherberginu.

föstudagur, október 22, 2004
Skoðunarferð um Amsterdam
Fórum í dag með Sverri til Amsterdam. Veðrið var mjög gott og hentaði vel til útsýnissiglinga og þessháttar útiveru. Fyrst lá leið okkar í Van Gogh safnið og öll helstu verk listamannsins skoðuð. Við leigðum svona "rafleiðsögumann" þ.e. tæki með heyrnartólum sem kynnti fyrir manni málverkin. Það var hægt að fá sérstakt prógram fyrir börn, og fékk Kolbjörn svoleiðis tæki. Tækið hafði þau áhrif að Kolbirni fannst í fyrsta skipti gaman að fara á safn (við hespuðum þessu líka tiltölulega fljótt af).
Fórum líka í síkjasiglingu. Ráðlegg öllum sem heimsækja Amsterdam að fara í svoleiðis. Ráðlegg líka öllum sem heimsækja Rotterdam að fara í Pönnukökubátinn, ég held að ferðin með honum hafi verið hápunktur heimsóknarinnar hjá Sverri.
fimmtudagur, október 21, 2004
Á morgun verður farið til Amsterdam
Á morgun ætlum við Sverrir og Kolbjörn að fara til Amsterdam í menningarreisu. Hugmyndin er að fara í síkjasiglingu, og fara á annaðhvort Önnufrank safnið eða Van Gogh safnið. Veit ekki alveg hvað björninn hefur mikla þolinmæði í að fara á söfn, síkjasiglinginn verður líklega meiri söksess hjá honum.
Við vöknuðum snemma í morgun og elduðum pönnukökur. Fórum svo í rúmlega tveggja tíma göngutúr útí Kralingen Garð (Sjá myndir hér að neðan). Á morgun ætlum ég Sverrir og Kolbjörn til Amsterdam, kíkjum kannske á Önnu Frank safnið. Kolbrún verður á sama tíma í Maastricht í suður Hollandi á ráðstefnu, ég öfunda hana soldið af því að vera að fara þangað, þetta er víst ein skemmtilegasta borgin í Hollandi að heimsækja.
Ég er í fríi nú fram á Þriðjudag, og ætla að reyna að klára að setja upp ljós í íbúðinni og ganga frá svona atriðum sem eru eftir hér.

Vöknuðum í morgun og elduðum okkur pönnukökur og fórum svo í tveggja tíma göngutúr með Sverri í Kralingen Garðinn. Það var pínu kalt sem sést kannske á Sverri á myndunum hér.

miðvikudagur, október 20, 2004
Hér er rok og rigning! Böhöhö!!!
Það hefði mátt hlakka meira í mér í gær útaf veðrinu heima á Íslandi. Það er hálfgert slagviðri hér í dag. Skiptir samt litlu máli fyrir mig þar sem ég er að taka síðasta prófið mitt á þessari önn í dag. Eftir prófið ætla ég svo að klára verkefni sem á að skila á föstudaginn, og þá er ég kominn í langþráð fimm daga frí.
Sverrir og Kolbjörn hættu við ferðina í dýragarðinn í dag sökum slagviðris, kannske að Kolbirni takist að draga Sverri með sér á Yu Gi Oh myndina. Þeir fóru hinsvegar í Pönnukökubátinn í gær og voru hæstánægðir með þá ferð. Í pönnukökubátnum var hægt að éta pönnukökur eins og maður gat í sig látið, og ís á eftir. Þegar ég spurði Kolbjörn hvað hann hefði borðað margar Pönnsur þá tjáði hann mér að hannn hefði borðað tvær, "..en Sverrir borðaði svona þúsund!!".
þriðjudagur, október 19, 2004
Hér er ekki slydda og skafrenningur ha ha ha!!!
Það var frááábæært veður í Rotterdam í dag! Og það var ennþá betra þegar maður var búinn að lesa Moggann og frétta af blindbyl á Íslandi.
Fór út að skokka í Kralingen Bos sem er garður/skógur rétt hjá þar sem við eigum heima núna. Komst að því að ég er ekki í sérstöku hlaupaformi. Verð með harðsperrur á morgun.
mánudagur, október 18, 2004
Kolbjörn og fjörtíuogþriggjaára föðurbróður hans fóru nú rétt í þessu í pönnukökubátinn í Rotterdam. Pönnukökubáturinn fer í siglingu upp Maas ána, og geta ferðalangar étið eins og þeir geta í sig látið af pönnukökum á meðan siglingu stendur. Það mátti ekki á milli sjá hvor þeirra væri spenntari; Kolbjörn eða Sverrir.
Kolbjörn var að reyna að dobbla Sverri til að fara með sér líka í bíó, á "Yu Gi OH the Movie" mynd sem enginn hér á heimilinu hefur svo mikið sem tekið í mál að fara með honum á. Þeir fara kannske á það seinna í vikunni. Á morgun stendur til að fara í dýragarðinn.
sunnudagur, október 17, 2004
Kobbi selur kominn með Zwemdiploma A

Það er ekki að sökum að spyrja Kolbjörn stóð sig eins og hetja á sundprófinu. Tókum Líka vídeómyndir, á því fyrra myndskeiðinu er hann í baksundi, en í því seinna í kafsundhluta prófsins.








