<$BlogRSDURL$>
Fréttir frá Rotterdam
laugardagur, febrúar 28, 2004
 
Í morgun fórum við í göngutúr á beyglubakarí hér í grenndini. Kolbjörn fékk sér beyglu með banönum og sírópi. Við ætlum að taka það rólega í dag, í kvöld ætlum við að kíkja á einskonar menningarnótt, öll listasöfn opin frammá nótt og mikið mannlíf.



|
föstudagur, febrúar 27, 2004
 
Vorinu frestað í Hollandi!


Þegar við vöknuðum í morgun var alhvít jörð. Snjórinn er ekki farinn ennþá heldur hefur haldið áfram að snjóa í allan dag. Það kom sér vel að vera á fjallahjóli í morgun. Rícardo frá brasilíu þorði ekki á hjólinu í skólann, labbaði í staðinn, var einn og hálfan tíma á leiðinni og rann þrisvar á rassgatið þar sem fótabúnaðinum var ábótavant (tennisskór). Í gærkvöldi fórum við Kolbrún í matarboð hjá Miguel frá Venesúela, þar fengum við arepas sem er einskonar píta búin til úr maísbrauði, einkar ljúffengt.



Á myndinni útskýrir Miguel hvernig maður ber sig að við neyslu arepas

|
miðvikudagur, febrúar 25, 2004
 
Langur dagur að baki. Var í skólanum til hálfníu, kom heim og fékk kaldan makkdónaldsborgara með köldum frönskum. Það er ótrúlegt hvað það getur verið ljúffengt þegar maður er dauðhungraður og maður er búinn að vera alinn á þurru brauði allan daginn. Talandi um mat, þá kunna Hollendingar engan veginn að elda mat (tradisjónal hollenskur heimilismatur er týpískt einka ógirnileg stappa, eða heilt hakkstykki steikt á pönnu). Allavega kann Maria í Mötuneyti Maríu (e. Maria's cantina) í RSM ekki að elda. Ég fór að velta fyrir mér að ég sé aldrei kínverjana í þar í mat, hélt kannske að þeir kæmu með eigin grjón í poka og ætu þau einhversstaðar á göngum. Nei nei! Kemur ekki í ljós að þeir eru búnir að gera díl við kínverska veitingastaðinn sem er hinum megin við götuna €3,75 fyrir allt á matseðlinum. Við bleiknefjar getum fengið sama díl í fylgd með Kínverja!! Þeir sjá um sína þessir djöflar. Héðan í frá er genginn í kínverjaklíkuna.
|
þriðjudagur, febrúar 24, 2004
 
Hér er mynd af Kolbirni í veikindum (með fötuna til taks!). Seinni myndin var tekin um daginn þegar hann neitaði að fara að sofa.



|
 
Vöknuðum klukkan 4 í nótt við að Kolbjörn var að æla í rúmið sitt. Greyjið kallinn kominn með ælupest. Er nú heima með Helenu að horfa á teiknimyndir með fötuna fyrir framan sig.
Ég er í þokkalegu formi eftir ofurhlaupatúrinn í gær þvert á allar væntingar, hjólaði í skólann og allt. Held samt að ég hjóli út í Kralingen garð næst og hlaupi í kringum vatnið, fullmikið fyrir mann á mínum aldri að hlaupa í korter að og frá garðinum.
|
mánudagur, febrúar 23, 2004
 
Nær dauða en lífi!!!

Fór áðan út að skokka, ákvað að prófa nýja leið. Fara og hlaupa í kringum vatnið í Kralingengarði sem er hér svoldið frá. Þetta varð svoldið lengra en ég hélt! Heildartúrinn varð 80 mínútur sem eru amk 12 kílómetrar. Vona að ég geti gengið á morgun.
|
 
Fór í morgun að hitta nýja hópinn minn í skólanum. Raðað er í hópa á hverri önn, og vinnur hópurinn samann öll verkefni. Þetta er í annað sinn sem við hittumst útaf verkefni í skólanum.
Á myndinni eru (talið frá vinstri) Claudie frá Frakklandi, Luis frá Portúgal, Miguel frá Venesúela og Han Tun (Roger) frá Taiwan. Á myndina vantar Majugo frá Úganda sem var í þýskutíma




|
 
Í morgun snjóaði aftur!!! Þetta er búinn að vera hlýjasti vetur í Hollandi frá því 1901 (skv áræðanlegum heimildum úr íslendingaskólanum). Það er búið að vera hálfgert vorveður hér allan febrúar, sum tré byrjuð að laufgast osfrv. Yfirleitt á að vera hægt að komast á skauta nokkra daga á veturna hérna. Þegar frystir almennilega er haldin 200 km skautakeppni á síkjum milli borga, þar sem færri komast að en vilja. Þegar þetta gerist fer víst allt á annan endan hérna, frí gefið í skólum og vinnustöðum lokað. Það verður líklega bið á því að við verðum vitni að skautahlaupinu

Myndin var tekin snemma í morgun úti á svölum. Í bakgrunninum á snjókoman að sjást


|
sunnudagur, febrúar 22, 2004
 
Fyrir viku síðan fórum við á þorrablót íslendinga í Hollandi, það var mikið stuð, hákarl og hrútspungum var skolað niður með hæfilegu magni af brennivíni. Á blótinu voru ýmis skemmtiatriði, Amstelbandið lék fyrir dansi og ný uppfærsla af Rauðhettu og úlfinum.




Í dag fórum við svo í Íslendingaskólann í Utrecht, frekar lítil mæting í þetta skiptið þar sem margir nota tækifærið og fara í frí á þessum tíma þegar frí eru í skólum í Hollandi.



|
 
Um daginn snjóaði í fyrsta skiptið í vetur. Eins og allsstaðar í útlöndum þá fer allt á hvolf þegar snjóar. Kolbrún var 3,5 klst að keyra í vinnuna (62 km) morguninn eftir. Ég var í skólanum að vinna að verkefni með hópnum mínum þá var þessi mynd tekin.



á myndina vantar Joan sem var í þýskutíma. Frá hægri eru Mari, ég, Amedeo, Ricardo og Iris. Snjórinn entist í uþb. sólarhring og svo búið, á varla von á meiri snjó úr þessu.
|
fimmtudagur, febrúar 19, 2004
 
Við fórum til parísar um áramótin. Hér eru nokkrar myndir frá ferðalaginu. Sú fyrsta er beisik af eiffelturninum um áramót. Þarna voru samankomnir milljón ölvarðir frakkar að horfa á turninn blikka um áramót. Það virðist lítið þurfa til að gleðja þessi grey. Svo er Kolbjörn að borða köku og drekka kakó. Þriðja er svo af kolbirni um áramót
|
miðvikudagur, febrúar 18, 2004
 
Jæja þá er komið að því. Eiríkur er mættur aftur á bloggið eftir allnokkra fjarveru. Nú er stefnan að taka sig saman í andlitinu og fara að skrifa reglulegar á bloggið. Hvað er að frétta? Fyrsta önnin er búin í RSM og næsta komin á fullt skrið. Ég er kominn í nýjan hóp í skólanum, sá er að minnsta kosti jafn skrautlegur og sá fyrri (sjá fyrri pósta). Þrátt fyrir að engin slagsmál hafi átt sér stað ennþá. Ágætt að kynnast nýju fólki maður var orðinn kannske svoldið langþreyttur á að vera alltaf með sama fólkinu. Til dæmis þá dvaldi ég lengur með Amedeo sköllótta þungaviktarítalanum en síðustu vikuna fyrir próf heldur en við við hefðum báðir kosið að öllu jöfnu. Það er svo skrýtið með þessa ítala hvað þeir hafa rosalegt samband við mömmur sínar. Mamma hans hringdi í hannn amk 3 sinnum miilli 8 og 10 á kvöldin, þegar hann reyndi að losna við hana og koma henni í skilning um að hann væri frekar upptekinn þá hækkaði yfirleitt frekar í röddinni hinum megin í símanum og svo "noooooooo mama mía jo soj okkúpató!!!". Svo þegar mamman var búin þá hringdi kærastan og þá fór í gang sami prósess sem endaði með "noooooooo mí amore jo soj okkúpató!!!".
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com