<$BlogRSDURL$>
Fréttir frá Rotterdam
mánudagur, maí 17, 2004
 

Rosalega er gott að búa í útlöndum, sérstaklega núna síðustu vikurnar þegar er komin 20°C á hverjum degi. Annar kostur er að geta valið hvenær eða yfir höfuð hvort maður skellir sér á netið horfir á Davíð Oddsson taka geðvonskuköst og ata forseta vorn auri.

|
sunnudagur, maí 02, 2004
 

Þá erum við hjónin búin að vera ein í búinu í rúmlega viku. Kolbjörn og Helena eru á Íslandi í maí-fríinu sem er í skólanum hjá Kolbirni. Það er búið að vera frekar tómlegt í íbúðinni að undanförnu, enginn sem vekur mann klukkan 7 á morgnanna um helgar. Ég kláraði prófin á fimmtudaginn, og fórum við Kolbrún í partí með skólafélugunum, það var svaka stuð allir þvílíkt ánægðir og dauðþreyttir eftir prófin. Á föstudaginn var þjóðhátíðardagur Hollendinga, Drottiningardagurinn. Við ætluðum að hitta vinkonu Kolbrúnar í Amsterdam, sem hún hefur ekki hitt síðan í níunda bekk. Þegar við komum til Amsterdam þá var allt fullt af fólki allsstaðar, og ómögulegt að hringja úr GSM síma og náðu þær aldrei sambandi allan daginn. Frekar fúlt. En við skemmtum okkur samt frábærlega, þetta var eitt risastórt reif-karnival. Allir í appelsínugulum fötum drekkandi bjór og dansandi.

Þar líka siður hér að fara út á götur og selja draslið sem maður er hættur að nota á þessum degi. Og þvílíkt drasl sem sumir voru að selja, gamlar sleifar, handalausar barbí dúkkur og 10 ára gamlar tölvur.



Kolbjörn var sendur í klippingu áður en hann fór í flugvélina til íslands. Stuð að bíða eftir innrituninni, röðin sem við vorum í fór meira en helmingi hægar en röðin við hliðiná. Gaman!!! ...Eða þannig.



Ótrúlegasta drasl sem Hollendingar selja á þessum drottnigardegi. Hér hefur einhver ákveðið að selja úr sér gengið drasl úr eldhúsinu. Til hægri er mynd af reif partíi á bát á síki í Amsterdam, þessir eru með plötusnúð og allt á bátnum. Öll síki voru full af svona partíbátum á laugardaginn.



Það var rosa fjör í Amsterdam

|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com