<$BlogRSDURL$>
Fréttir frá Rotterdam
þriðjudagur, júní 29, 2004
 

Myndir úr Six Flags ferðinni




|
mánudagur, júní 28, 2004
 

Kolbjörn fékk línuskauta í afmælisgjöf á Föstudaginn. Ég fór svo morguninn eftir og keypti mér líka skauta til að vera í stíl. Maður var svoldið eins og belja á svelli til að byrja með. Kolbrún og Kolbjörn fóru með mér að prófa þetta, þau voru á hjólum á meðan ég skautaði. Við vorum að í nærri klukkutíma og ég áður en yfir lauk var ég búinn að skauta tíu kílómetra.


Um kvöldið horfðum við svo á æsispennandi leik Hollands og Svíþjóðar. Það varð allt vitlaust hér um Miðnætti þegar hinn tvítugi leikmaður Philips Sport Vereniging Eindhoven skoraði sigurmarkið í vítaspyrnu bráðabana. Fagnaðarlætin stóðu langt fram á nótt, bílflautur þeyttar, Karnival stemning í miðbænum. Ég og Kolbrún fórum í bæinn að skoða karnival stemninguna. Óeirðalögreglan var tilbúin, enda allinn varinn góður. Feyenoord (sem er Rotterdam liðið fyrir þá sem ekki vita) aðdáendur brutu nefnilega allar rúður í miðbænum þegar Feyenoord varð hollenskur meistari fyrir fjórum árum.

Á sunnudag fórum við svo í Six Flags Rússíbana garðinn. Þar eru rússíbanarnir stærri og svakalegri en ég hef áður augum barið. Byrjuðum við að fara í einn lítinn, hann fór á hvolf fimm sinnum og fór maginn aðeins í hnút þar. Strax á eftir var farið í stóra trérússíbanann hann fór margar salíbunur, þá fór maginn aðeins meira í hnút. Þegar vagninn staðnæmdist spratt ég á lappir, hallaði mér yfir handriðið og losaði úr meltingarfærunum úr tuttugu metra hæð. Tilkomumikil sjón. Þetta jafnaðist allt eftir einn hamborgara, franskar stóran bjór og líter af kóki. Þetta er mjög flottur garður, og ég held að Kolbjörn eigi eftir að lifa á þessari ferð í marga mánuði.


|
föstudagur, júní 25, 2004
 

Myndir frá Afmælisdeginum

Það var mikið stuð á afmælisdeginum. Kolbjörn fékk línuskauta frá okkur, línuskautahlífar frá hundinum Depli, Ninja turtles frá Helenu, Hollenska landsliðsbúninginn frá Afa og ömmu í sveitinni og pénínga inná bankabók frá Jensafa.











|
 

KOLBJÖRN 8 ÁRA Í DAG



|
fimmtudagur, júní 24, 2004
 

Loksins höfðu Hollendigar heppnina með sér, eftir frækilegan sigur á getulausu liði Letta 3-0, í leik sem hæglega hefði getað farið 7-0, ef aðal stjarnan og markahrókurinn Ruud Van Nistelrooy hefði verið á skotskónum.

Tékkar unnu Þjóðverja 2-1, en þau úrslit tryggðu okkar mönnum sæti í 16 liða úrslitum. Tékkar voru frekar heppnir, Þjóðverjar voru stanslaust í sókn, en þriðja ríkinu virðist vanta talent í að skora. Þó var íslandsvinurinn Schweinsteiger hættulegur.

Að öðru máli. Við fjölskyldan getum vart beðið eftir því að koma heim til Íslands, í góða veðrið. Hér hefur geisað óveður síðustu daga, og nærri verið alveg sólarlaust í þrjár vikur. Ömurlegt. Ég hélt áður en ég flutti af klakanum að það væri alltaf gott veður allsstaðar í útlöndum. Í gær drápust tveir úr vindi í þýskalandi! Og það um hásumar! Hvað er eiginlega að gerast. Endilega spreyjið meira af freoni í loftið, það eru alls ekki nógu mikil gróðurhúsaáhrif.

|
miðvikudagur, júní 23, 2004
 

Þá er Holland að fara að spila á móti Þýskalandi í nú á eftir. Í sjónvarpinu er verið að sýna svipmyndir af þjálfara Hollendinga, Dick Advocaat, í leiknm á móti Tékkum, undirniðri heyrist lagið "This will be the last time" með Rsiolling Stones. Ég tel sáralitla mögluleika á að hollendingarnir komist áfram. Það veltur allt á því að Tékkar vinni Þjóðverja, og það í leik þar sem Tékkar tefla fram varaliði.


|
mánudagur, júní 21, 2004
 

Á laugardaginn fórum við í brúðkaup hjá vinnufélaga Kolbrúnar rétt hjá Eindhoven. Brúðkaupin hér eru um margt lík þeim íslensku. Mikið um glens og grín, og einnig mikið sungið. Það vakti athygli mína hvað Hollendingar eru almennt lélegt söngfólk, almennt laglausir og geta ekki stumrað texta rétt útúr sér þrátt fyrir að hafa hann prentaðan út á blaði.

Á sama tíma og brúðkaupið fór fram átti sér stað fótboltaleikur milli Hollands og Tékklands. Margir veislugestir stálust til að horfa á seinni hálfleik sem sýndur var á breiðtjaldi í hliðarherbergi. Appelsínumenn komust yfir 2-0 eftir tuttugu mínútur, en í seinni hálfleik fór þjálfarafíflið á taugum og Tékkar skoruðu þrjú mörk. Því er að öllum líkum úti um þessa sjóferð, nú verða Appelsínur að reiða sig á getuleysi Þjóðverja gegn Tékkum. Sjálfir verða Appelsínumenn að vinna Lettland.

|
fimmtudagur, júní 17, 2004
 

Það var hringt í mig fimm mínútum áður en Holland-Þýskaland hófst á Þriðjudaginn. Nokkrir skólafélagar mínir, höfðu ætlað í bæinn á pöbb til að horfa á leikinn. Það var ekki nokkur leið, allir staðir voru troðfullir klukkutíma áður en leikurinn var flautaður á. Ég neyddist til að sjá aumur á þessum námsmönnum og leyfa þeim að horfa á leikinn á breiðtjaldi heima hjá okkur.

Leikurinn sjálfur var kannske ekki mikið fyrir augað, markið hjá Þjóðverjum var misheppnuð sending sem enginn náði. En mikil fagnaðarlæti brutust út í stofunni heima þegar hinn hárprúði Ruud Van Nistelrooy skoraði jöfnunarmarkið úr vonlausu færi.

Næsti leikur Óranjumanna er á laugardaginn, á móti Tékkum. Leikinn ber upp sama dag og íslendingar hér í Hollandi halda uppá sautjánda júní. Það vill svo illa til að ég og Kolbrún erum á leið í brúðkaup í Eindhoven á sama tíma og leikurinn er....

Varðandi sautjánda júní hátíðarhöldin þá spáir íslensku sautjánda júní veðri, rigningu og roki. Þetta er mjög miður þar sem val á hátíðarsvæði tekur einungis tillit til blíðviðris, en hún er haldin í garði með sundlaug, þar verða grillaðar pulsur ofl.

|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com