Fréttir frá Rotterdam
mánudagur, nóvember 29, 2004

Kolbjörn fer í íslenskuskólann í Utrecht annan hvern Sunnudag. Við notum stundum tækifærið og röltum um bæinn í Utrecht á meðan.
Skreytingarnar sem þið sjáið eru Sinterklaas skreytingar en Sinterklaas er í næstu viku og þá gefa Hollendingar gjafir. Jólin eru bara auka frídagar hér, svipað og Hvítasunnuhelgin heima. Það er ekki laust við að maður sakni aðeins jólastemningarinnar heima.

föstudagur, nóvember 26, 2004
Það barst í fréttir um daginn að einn efnilegasti fótboltaspilari íslands væri á leið til Rotterdamliðsins Feyenoord. Þetta gladdi mjög íslendinga hér í borg enda ekki ónýtt að hafa sprækan íslending í röðum liðsins. Feyenoord er eitt af stórliðunum hér í Hollandi ásamt PSV og Ajax. Félagið varð Evrópumeistari (félagsliða) árið 2002. Félagið er nú að taka við sér eftir nokkra lægð, er i öðru sæti í hollensku deildinni og sjálfur Ruud Gullit er tekinn við stjórn liðsins. Heimavöllur liðsins, sem er aðal heimavöllur hollenska landsliðsins, er einhver sá glæsilegasti í Evrópu.
Það var óneitanlega sársvekkjandi þegar mörlendingurinn efnilegi ákvað að reyna fyrir sér hjá einhverju afdankaðasta fótboltaliði á Englandi: Tottenham. Hann hefur eflaust ekki þorað að feta í fótspor Péturs Péturssonar sem lék með Feyenoord hér á árum áður og var algjör hetja. Pétur Pétursson er enn þann dag í dag langfrægasti íslendingurinn hér í Rotterdam. Hvorki Óli Grís, Kristján Arason eða Björk komast með tærnar þar sem Pétur er með hælana.
fimmtudagur, nóvember 25, 2004
Það er kominn vetur í Hollandi. Kolbrún vaknaði eldsnemma í morgun til að vera á undan morgnumferðinni til Utrecht. Hún var svoldið lúin, hún fékk nefninlega lánað safn af Friends þáttum í gær og var að horfa á það fram á nótt. Ég vaknaði hinsvegar við það þegar Kolbrún var að skafa hrímið af bílrúðunum. Engin smávegis átök. Ég hélt að einhver væri að saga sig inn í íbúðina. Það er liggur svona frost þoka yfir öllu 2-3ja stiga frost en þoka yfir öllu. Ógeðslega kalt.
miðvikudagur, nóvember 24, 2004
Í gær átti ég afmæli eins og áður hefur komið fram. Takk fyrir kveðjurnar bæ þe vei. Í tilefni dagsins fórum við út að borða á Súrínamskan stað kallaðan Sorg og Von og átum "Rijstafel" sem er samansafn af allskonar smáréttum. Einkar bragðgott, mæli eindregið með því að fólk prófi Súrínamska matargerðarlist. En það er bara hægt hér í Hollandi eða í Súrínam.Hollendingar voru þrælapískarar í Súrínam í gamla daga. Ein af afleiðingum þess er að hér eru margir innflytjendur frá Súrínam. Mynda þeir til að mynda uppistöðunam af hollenska landsliðinu í fótbolta.
þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Þrjátíuogeinsárs í dag
Þá er maður formlega kominn á fertugsaldurinn. Mig minnir að það hafi verið þáttur í sjónvarpinu hérna um árið sem hét "Thirty something" sem fjallaði um erfiðleika í lífi miðaldra fólks.
Unnur systir hringdi í mig í áðan, var í nótt að rýma pabba úr íbúðinni á Kleppsveginum útaf bruna í dekkjastafla á höfninni. Blokkinn er víst alveg svört að utan.

mánudagur, nóvember 22, 2004
Helgin var tiltölulega róleg hjá okkur. Á föstudagskvöldið ákváðum við að fara út að borða á kínversk/japanska veitingastaðinn í hverfinu. Ég ætlaði varla að þora inná staðinn þar sem ég var ekki klæddur í smóking. Hann var svo skelfilega formlegur. En maturinn var góður og þetta slapp allt fyrir þrátt fyrir jakkaskortinn. Á laugardaginn var ég í skólanum allan daginn á meðan Kolbrún og Kolbjörn fóru í búðir, en Kolbirni finnst mjög gaman að máta og versla föt...eða þannig. Í gær var svo bara almennur afslöppunardagur, ég og Kolbjörn fórum í sund. Skelltum okkur nokkrar ferðir í rennibrautina og á stökkbrettið (eða plankann eins Kolbjörn kallar hann). Um kvöldið fórum við svo í stutta heimsókn til Iðu og Einars.
föstudagur, nóvember 19, 2004

Freyðibað
Freyðibað hefur notið mikilla vinsælda undanfarið. Þegar sjampóbrúsarnir voru hættir að endast vikuna var fjárfest í freyðibaðsbrúsa sem sló í gegn

Ég og Kolbjörn löbbuðum útá rakarastofu áðan að panta tíma í klippingu. Það er kominn tími til þar sem við erum orðnir hálfgerðir leppalúðar, fengum tíma seinna í dag fyrir okkur báða. Ætlaði að fara í gær, en treysti mér ekki útfyrir hússins dyr þar sem það rigndi eldi og brennisteini. Það var rigning hérna í heila tvo daga án þess að það stytti upp á milli! Ég veit ekki hvort sé verra 12 stiga frost heima á íslandi eða stanslaus rigning. Maður á kannske ekkert að vera að væla veðrið er ágætt núna.
Kolbjörn er í fríi í skólanum í dag og það er enginn skóli hjá mér heldur. Kolbrún vaknaði fyrir klukkan sjö til að fara í vinnuna. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar og ætlaði að sofa aðeins lengur. En það var ekki að sökum að spyrjast. Byggingarverktakarnir í nágrenninu voru byrjaðir að berja niður staura klukkan sjö, ekki hægt að leggja sig í mínútu lengur. Það er ótrúlegt hvað það þarf að berja niður marga staura fyrir eitt hús.
þriðjudagur, nóvember 16, 2004
Fór út að hlaupa áðan og komst að því að því mér til mikillar gremju að það væri sprungið á hlaupaskónum. Þetta Nike er algjört drasl. Skórnir voru tiltölulega nýlegir. Litu amk út alveg eins og nýir.
Við hjónakornin skruppum í bíó í gærkvöldi á Bridget Jones Diary 2. Það er gaman að skreppa í bíó sem maður gerir nú ekki oft nema þá helst á geimskrímslateikni-hryllingsmyndir sem eru í mestu uppáhaldi hjá syninum. Bridget Jones 2 kom ekkert sérstaklega á óvart. Hún var endurtekning á fyrri myndinni, þar sem búið var að endurgera fyndnustu atriðin úr upprunalegu myndinni. Í þetta skiptið reynt að hafa atriðin enn farsakenndari. Þessar Bridget Jones myndir eiga að vera breskar, eða amk reyna það. Samt er alltaf þessi vellulegi ameríski endir á þessu, þannig að það er í sjálfu sér ekkert breskt við þetta nema Hugh Grant með snobblegan breskan hreim og að myndin gerist í London. Nóg af neikvæðni í bili...
mánudagur, nóvember 15, 2004
Skítakuldi
Sit fyrir framan tölvuna í flíspeysu og með fingravettlinga. Ástæðan er sú að við erum að Hollandsvæðast. Í gær þegar við fórum að sofa þá skrúfaði Kolbrún termóstattið niður eins og Hollendingurinn gerir áður en hann leggst til hvílu að kveldi og áður en hann heldur til vinnu á morgni. Kolbrún er nú ekkert að tvínóna við hlutina þegar hún tekur þá að sér og skrúfaði hitan niður í 10 gráður. Í morgun þegar ég vaknaði þá var hrím á plastparketinu og hljóp ég niður og skrúfaði upp hitann í íslenskar 25 gráður.
Spurning hvort maður kaupi sér ekki kamínu, höggvi niður trén í garðinum sem hvort eð er eru bara með köngulóm á og skyggja á alla sól.
sunnudagur, nóvember 14, 2004
Þetta var algjör stuðhelgi. Á föstudagskvöldið fórum við Kolbrún í "Latin Partí" í skólanum mínum, þar var djammað bjór og tekíla drukkið fram á nótt. Áður en við fórum í partíið þá fórum við á japanskan veitingastað þar sem maður situr við svona einskonar grill og kokkurinn eldar matinn fyrir framan mann, það var mjög gaman.
Á Laugardaginn fórum við svo að sjá Sinterklaas koma til Hollands frá Spáni og fengum piparkökur og nammi frá Svarte Piets, um kvöldið komu svo Helga og Mattijs vinir okkar sem búa í den Haag. Mattijs, sem er hollenskur, kenndi okkur á hitakerfið í húsinu. Hér er ekki vaninn að opna gluggann þegar of heitt er inni!! Mattijs var pínulítið forviða að sjá að Kolbrún hafði límt gulan miða með símanúmerum á sjálft termóstattið sem maður stillir hitann, því Hollendingar stilla þetta amk þrisvar á dag til að spara hita. Ég held að við Kolbrún þurfum aðeins að fara að pæla í þessu til að fá ekki bakreikning uppá mörg hundruð þúsund, eins og hefur víst gerst hjá sumum.

Það tók smá tíma fyrir Kolbjörn að telja í sig kjark til að fara með útrétta lúkuna til svarte piets til að fá piparkökur og nammi


Á Sinterklaas er siður að borða súkkulaði stafi. Kolbjörn valdi sér staf úr hvítu súkkulaði að þessu sinni.

fimmtudagur, nóvember 11, 2004
Holland er ein stór mýri (eða lítil fer eftir því hvernig maður lítur á það). Þegar hús eru byggð í mýri þá verður það aðeins gert með að reka niður staura. Í nágrenni við okkur er verið að byggja verslunar og skrifstofuhúsnæði. Til þess að klambrið líti ekki út eins og skakki turninn á Ítalíu þá þarf að reka niður 6-7 metra langa steypustaura. Það er gert með risastórri maskínu sem ber stauranna niður. Fólk getur bara rétt ímyndað sér hávaðan af þessu. Það sem verra er: iðnaðarmenn hefja vinnu uppúr klukkan sjö á morgnanna og það er alltaf einhversstaðar verið að byggja.
miðvikudagur, nóvember 10, 2004
Komst að því í dag að lægsti punktur í Hollandi er 200 metra frá húsinu mínu. Ég og Kolbjörn fórum í göngutúr og rákumst á minnismerki sem heitir lægsti punktur í Hollandi. Það eru því aðeins tveir möguleikar annaðhvort er þetta hann eða ekki. Ég hafði áður haldið að þessi punktur væri 6-7 kílómetra lengra inní landinu. Eins gott að flóðvarnargarðarnir haldi.....
þriðjudagur, nóvember 09, 2004
Liggjum afvelta uppí sófa eftir kvöldmatinn, fengum okkur "coq au vin" sem útleggst sem hani í sósu, í okkar tilfelli var einungis um að ræða kjúklingalæri soðin uppúr rauðvíni með beikoni, sveppum og slatta af hvítlauk. Erum að horfa á hollenskt raunveruleikasjónvarp, sem er mjög raunverulegt. Þátturinn fjallar um "Danny de miljonair" eða Danny sem þykist vera milljónamæringur og er í þeim prósess að velja sér kvonfang. Nú eru bara tvær eftir og þá segir hann þeim að hann sé ekki milljóner og hvort þær vilji giftast honum þó hann eigi engan aur....
Kolbrún fékk í morgun skemmtilegan tölvupóst uppá 3 A4 síður frá tæplega 92 ára gömlum afabróður sínum. Hver segir að gamalt fólk geti ekki notað tölvur og Internet.
sunnudagur, nóvember 07, 2004
Fórum í Alexandrium sem er aðal mollið okkar hér í Rotterdam. Þar var búið að skreyta allt með Sinterklaas skreytingum, en Hollendingar halda uppá Sinterklaas 6. desember. Fyrir þá sem ekki vita þá er Sinterklaas einskonar jólasveinn (en samt ekki) sem kemur með hópi af svertingjum, sem allir eru kallaðir Svarti Pétur. Hvað um það ég tala kannske meira um Sinterklaas þegar nær dregur.
Fórum svo seinnipartinn í bíltúr til Amsterdam í heimskókn til Eika og Auðar, fengum þar kökur(margar sortir) og kaffi.
laugardagur, nóvember 06, 2004
Hverfisvídeóleigan hjá okkur er sú rosalegasta sem ég hef komið í, hún er svo rosaleg að sjálf Vídeóhöllin bliknar í samanburði. Þetta er náttúrulega einkenni á að maður sé kominn í úthverfi. En allaveganna þá fór ég á leiguna í gær, og leigði þrjár spólur The Jerk með Steve Martin, War of the Roses með Kathreen Turner, Michael Douglas og Danny Devito og Svo You've got mail með Tom Hanks og Meg Ryan. Menn gætu spurt sig hvað mér gengi til að leigja You´ve got mail. Ég sá hana einhverntíma í flugvél og fannst hún ekki sérlega spennandi þá. En það var eitthvað verið að tala um hana í skólanum um daginn. Konan sem er leikstjóri er víst mannfræðingur eða eitthvað svoleiðis og myndin er byggð utanum mannfræðikenningar um að öll samfélög verði að eiga sinn þriðja stað (já Heimilið er fyrsti, vinnan annar) og eru víst Starbucks Kaffihúsin notuð sem þriðji staðurinn í myndinni. Vona að myndin verði eitthvað áhugaverðari með þessar upplýsingar til hliðsjónar....
föstudagur, nóvember 05, 2004
Ég er í kúrs í skólanum sem heitir "Services Marketing" þar sem verið er að fjalla um markaðssetningu á þjónustu. Einn daninn fór að segja frá því þegar hann lenti í því einu sinni í Afríku að geta ekki tékkað sig inn vegna þess að liðið á flugvellinum fann ekki Kaupmannahöfn sem áfangastað í tölvunni, Argentínumaður sagði þá frá því að í Marokkó hefði hann lent í svipuðu nema menn þekktu bara alls ekki Argentínu sem land (Haaaalllló þó það væri ekki nema bara fyrir Maradona). Ég ákvað bara að þegja og vera ekkert að segja frá því sem menn lenda í sem íslendingar, eða þegar þeir sýna íslensk skilríki á flugvöllum í bílaleigum eða erlendum lögggæslumönnum þegar þeir keyra of hratt. Við erum með bíllinn (ENNÞÁ!!) á íslenskum númerum. Löggan stoppaði mig einusinni bara afþví henni fannst þetta forvitnilegt. Þegar við keyrum úti á vegum, þá glápir liðið sem tekur fram úr manni svo mikið að augun eru við að detta úr því...
Kolbrún vakti mig klukkan fimm í morgun: "Eiríkur VIÐ verðum að fara út með ruslið". Nágrannarnir voru þá byrjaðir að rútta til ruslatunnunum. Það er eins gott að gleyma ekki að fara með ruslatunnurnar út á stétt, því annars gæti maður verið í djúpum... Hollendingurinn hefur að jafnaði eina ruslatunnu sem er losuð annan hvern föstudag. Ein ruslafata tekur ekki sérstaklega mikið sorp og er tunnan hjá okkur kúfull eftir eina viku, og er maður því bókstaflega að kafna í rusli vikuna sem sorpið er hirt. Ætli maður verði ekki að fara að fjárfesta í sorpkvörn í vaskinn, eða pressu í ruslatunnuna.
fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Hættu að smjatta Kolbjörn
Kolbrún matreiddi dýrindis mexíkóskar pönnukökur í kvöldmat. Kolbirni þykir mexíkóskar pönnukökur mjög mjög góðar. Kolbjörn á við það vandamál að stríða að hann stundum gleymir að loka skoltinum þegar eitthvað gott er að éta og ef hann er svangur. Með öðrum orðum; Hann smjattar. "Jáenjáen ég gleymdi bara" segir hann þegar hann er ávíttur fyrir ósiðinn.

Kolbjörn fór ekki í skólann í morgun, vaknaði upp í nótt með hálsbólgu og hita. Kallinn liggur núna í sófanum og horfir á Fox Kids. Kolbjörn hefur aldrei verið neitt sérstaklega gefinn fyrir að klæða sig, notar til dæmis alltaf skóhorn þegar hann fer í skó. Síðustu daga hefur hann verið mikið úti að leika og yfirleitt strunsað út á peysunni. Ætli við verðum ekki að fara að brýna fyrir honum að dúða sig betur.
Skólinn er byrjaður á fullu hjá mér aftur núna, en ég er að byrja á nýrri önn núna. Á laugardaginn verð ég í skólanum allan daginn.
þriðjudagur, nóvember 02, 2004
Í dag eru forsetakosningar í Bandaríkjunum og flestar sjónvarpstöðvar og netmiðlar uppfullar af umfjöllun um þær. Hér í Hollandi er varla minnst á kosningarnar. Ástæðan er sú að í morgun var framið morð "af pólitískum ástæðum" hér í Hollandi. Kvikmyndagerðamaðurinn Theo Van Gogh (Já hann er víst skyldur málaranum) var skotinn til bana í Amsterdam í morgun.
Theo þessi hafði nýlega gert heimildarmynd um ofbeldi gegn konum í íslömskum samfélögum, sem vakti hörð viðbrögð hjá múslimum í Hollandi. Myndina gerði hann með sómalskri konu sem flýði frá heimalandinu til að komast hjá nauðungarhjónabandi, hún hefur fengið lögregluvernd frá sýningu myndarinnar. Van Gogh vann einnig að heimildarmynd um stjórnmálamannin Pim Fortijn sem var myrtur hér í Rotterdam fyrir um tveimur árum síðan. Pim Fortijn hafði haft frammi rótttækar hugmyndir um hvernig ætti að taka á "innflytjendavandanum" í Hollandi.
mánudagur, nóvember 01, 2004
Í dag var fyrsti dagurinn hjá Kolbirni í nýja skólanum, við fórum í morgun og hittum nýja kennarann hans juf de Keiser. Kolbjörn var mjög spenntur yfir þessu og virtist ekki vera vitund stressaður yfir því að byrja í nýjum skóla. Skólinn er bara 5-7 mínútna labb heiman frá okkur, sem er mikil breyting frá því að þurfa að hjóla eða taka sporvagn alltaf í skólann.

