<$BlogRSDURL$>
Fréttir frá Rotterdam
miðvikudagur, desember 29, 2004
 

Við höfum það alveg þokkalegt þrátt fyrir Kolbjarnarleysið. Fórum í bíó í gærkveldi á Ocean's 12, sem gerist að stórum hluta í Amsterdam. Það var svipaður fílingur og að fara á James bond mynd sem er tekin upp á Íslandi. Alveg troðfullt, við fengum bara sæti á fremsta bekk, og ekki saman. Í morgun vöknuðum við um tíuleytið, og fórum í göngutúr um Kralingen garðinn í frábæru veðri. Svo er að pakka í kvöld og kaupa kampavín fyrir áramótin í Maastricht.  Posted by Hello
|
þriðjudagur, desember 28, 2004
 
Núna er orðið soldið tómlegt í húsinu, en gestirnir sem voru hjá okkur um jólin hurfu á brott um hádegi. Kolbjörn ákvað að slást í för með gestunum til íslands og verður hann þar fram til tíunda janúar.
Við hjónin ætlum að eyða áramótunum í Limburg í suður Hollandi, eða nánar tiltekið í Maastricht.
|
laugardagur, desember 25, 2004
 
Gleðileg Jól

Við höfum haft það gott hér um jólin í Hollandi. Undirbúningurinn hefur ekki gengið alveg þrautarlaust fyrir sig. Kolbrún þurfti að fá einvhern óskiljanlegan kvilla í hendina rétt fyrir jólin og var því alveg handlama. Það var meira að segja farið með hana á spítalann að athuga hvort hún væri brotin, eða eitthvað. Þeir á spítalanum fundu náttúrulega ekki rassgat að henni, en fannst engu að síður góð hugmynd að setja hendina í fatla. Kolbrún snarversnaði í hendinni eftir að brussuhjúkka tróð á hana teygjubindi, þannig að það þurfti að leiða hana kjökrandi af spítalanum. Hendin hefur nú samt skánað hratt síðustu daga


Á Þorláksmessu komu svo Sigga, Hrafnkell, Brynja og Steinunn langamma. Komu þau færandi hendi með Nóakonfekt, hangikét, appóllólakkrís, flatkökur og malt. Þessara kræsinga hefur svo verið neytt um jólin. Á aðfangadagskvöld borðuðum við dýrindis hamborgarhrygg með sykurbrúnuðum kartöflum sem við skoluðum niður með jólaöli sem búið var til úr maltinu dýrmæta. Við tókum nokkrar myndir sem má nálgast á slædsjóvi hér

|
mánudagur, desember 06, 2004
 
Ég komst að því í gær hvað ég er krónískur koffínsjúklingur. Ég hef vitað um langt skeið að ég er háður þessu stöffi, en í gær keyrði um þverbak. Í gærmorgun þegar ég vaknaði, og fór niður til að fá mér morgunmat þá komst ég að því að það var ekki til neitt kaffi. Sem er eitthvað sem aldrei gerist. Hér er sko haldinn öryggislager. Ég leitaði og leitaði í öllum skápum og ekkert fannst. Mér fannst eins og dagurinn væri strax ónýtur, að ég myndi bara ekkert vakna almennilega. Svo alltíeinu fann ég bjargvættinn. Nescafe gold sem Kolbrún notaði til að baka sörur í fyrra. Guð hvað ég varð feginn! Sjaldan hefur jafn vont kaffi bragðast jafn vel.
|
fimmtudagur, desember 02, 2004
 
Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka vexti um 1%. Þetta hefði örugglega nægt til að ég fengi hjartaáfall fyrir nokkrum misserum síðan þegar ég var í verðbréfabransanum. Íslendingar hafa víst verið heldur duglegir að taka nýju lánin sem í boði eru, 55 milljarðar hafa víst farið út á nokkrum vikum. Ég man bara að einu sinni þótti mikið ef húsbréfaútgáfa fyrir heilt ár fór yfir 20 milljarða. Það er eitt sem er merkilegt það er að þessir 55 milljarðar stemma akkúrat við það sem landinn var með i yfirdrátt samanlagt. Ætli yfirdrátturinn hafi verið greiddur upp? Það kæmi amk mjög á óvart ef svo væri.
|
 
Í kvöld er karlakvöld. Kolbrún og Gwenný ætla að fara að fínpússa hollenskuna og ég og Kolbjörn ætlum í Bíó á Mr. Incredible. Það er búið að tala lengi um þessa mynd. Kolbjörn fann treilerinn að myndinni á netinu fyrir síðustu áramót. Nú er myndin loksins komin í bíó og þá er vart talað um annað en hvenær við förum á hana. Í kvöld ætlum við að fara, ég er reyndar ekki búinn að segja honum frá því. Þetta verður smá sörpræs.
|
miðvikudagur, desember 01, 2004
 
Kolbjörn fór í dag á sína fyrstu Jiu Jitsu æfingu. Fyrir þá sem ekki vita hvað Jiu Jitsu er þá er það austurlensk bardagalist, einskonar sambland af Júdó og Karate. Þetta fannst Kolbirni mjög gaman sparkaði og kýldi eitthvað útí loftið "... og svo kölluðum við eitthvað á kínversku". Kolbjörn æfði Júdó í tvo vetur heima á Íslandi, en þá var hann svo lítill að það var meira bara eitthvað sprikl. Núna var hann að læra alvöru fantabrögð, þetta er svona svipuð þjálfun og íslensku friðargæsluliðarnir fóru í gegnum.
|

Powered by Blogger

Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com