Fréttir frá Rotterdam
sunnudagur, febrúar 27, 2005
Það var heljarstuð á þorrablótinu, mikið étið af súrmat og drukkið af brennivíni. Maður var soldið slappur í morgun, en komumst samt fljótlega á ról. Helga Möller og Maggi Kjartans voru í megastuði, allir gömlu slagararnir teknir þar á meðal Gleðibankinn og Reykjavíkurborg. Lína frænka Kolbrúnar fékk eiginhandaráritun hjá Magga Kjartans á sérvéttu.
laugardagur, febrúar 26, 2005
Í kvöld ætlum við hjónakornin á Þorrablót og á ball. Árlega þorrablót íslendingafélagsins í Hollandi verður haldið í gömlu fjósi útí sveit í kvöld. Það er búið að fá hörkuband til að skemmta... hvorki meira né minna en Helga Möller og Maggi Kjartans. Þeir sem vita ekki hverjir þetta eru þá söng Helga Möller lagið "la la laaaa í Reykjavíkurborg....." árið 1982 eða fyrir 23 árum síðan. Helga var einnig viðriðin Gleðibankann ásamt Pálma Gunnarssyni og nafna mínum Haukassyni gaggóvestnojaraþungarokkara. Maggi Kjartans hefur nú verið meira í sviðsljósinu heima, ekki að spila músík nei nei, heldur meira að koma í veg fyrir að aðrir geti spilað músíkina. Hann vinnur í því að koma sköttum á hluti eins og endurritanlega geisladiska, og að rukka stefgjöld þar sem fólk kemur saman með kveikt á útvarpi, eins og á rakarastofum og í sjoppum. Ég held að það hafi verið svo mikið að gera hjá honum í hagsmunabaráttunni að ég yrði ekkert hissa ef hann væri bara búinn að gleyma öllum lögunum sem hann kunni einu sinni á jamaha orgelið sitt. Þetta verður algjört stuð sama og höfum við orð frænda Kolbrúnar að leiðarljósi "..þar sem tveir eða fleiri koma saman, ...þar er gaman!"

Sannkallaður stuðbolti!
mánudagur, febrúar 14, 2005
|
|
|
|
|
|
|
laugardagur, febrúar 05, 2005
Það er búið að vera frekar gott veður hér síðustu daga. Krakkarnir leika sér úti á peysunni og gróður er aðeins byrjaður að taka við sér. Mér finnst eins og veturinn núna hafi verið "mildari" en í fyrra. Ekki að það hafi gert sérlegar frosthörkur fyrir ári, heldur var eiginlega stanslaus rigning og þoka, minna hefur verið um það núna. Hverjum er svo sem ekki skítsama um þetta, ég er bara að reyna að telja í mig kjark til að fara út að skokka. Það hefur ekki ennþá frosnað almennilega á síkjum og vötnum hérna svo hægt sé að fara á skauta. Skautar eru mjög mikið sport hérna og er víst mikið fjör þegar síkin frosna, það verður líklega bið á því.
Annars er útskriftin mín á föstudaginn og er ég búinn að bjóða í heljarinnar veislu, reyni að troða eins mörgum inn í stofuna og ég mögulega get. Unnur systir kemur á fimmtudaginn og ætlar að vera viðstödd útskriftina.

Myndin var tekin af Kolbirni þegar við fórum í göngutúr á föstudaginn. Veðrið er búið að vera mjög gott síðustu daga.

föstudagur, febrúar 04, 2005
Eins og minnugir lesendur Rotterdamfrétta muna þá lenti Kolbrún í þónokkrum árekstri á leiðinni í vinnuna um miðjan nóvember við spænskan trukk. Þetta gerðist náttúrulega tveimur dögum áður en bíllinn komst loks á hollensk númer. Við erum því búin að vera í heljarstappi að fá greitt úr tryggingunum á íslandi. Þeir hjá Sjóvá hafa alveg verið hjálplegir, en maður getur rétt ímyndað sér að svona lagað sé ekki uppáhaldi hjá þeim. Ég meina íslenskur bíll í árekstri við spænskan í Hollandi. Við fengum bréf fyrir um tíu dögum síðan að við gætum fengið bæturnar greiddar hjá einhverju tryggingarfélagi hér í Hollandi. Það verður spennandi að sjá hvernig það gengur upp! Vonandi að það verði búið að gera við afturbrettið fyrir sumarið.







